Vörur
Á stjórnendasíðunni getur þú stýrt öllu sem við kemur vörum og vöruspjaldinu. Til að komast á stjórnendasíðuna þarft þú að skrá þig inn í netverslunina með “admin” notendanafni og fara svo á slóðina /admin
. Smelltu svo á “Vörur” í aðalvalmyndinni.
Hér getur þú:
- Stofnað nýjar vörur
- Eytt vörum
- Breytt vörum
- Afritað vörur
- Leitað í vörumaster
- Stjórnað “Taxonomies” og “Taxons”
- Stillt möguleika hverrar vöru
- Búið til vöruflokka
Auk þess getur þú sett upp, breytt og eytt möguleikum vörunnar; sett upp, breytt og eytteiginleikum vörunnar; og unnið með frumgerð vörunnar (e. prototype).