Sendingarmátar
Boxið býður upp á sveigjanlega og árangursríkar leiðir til að reikna út sendingarkostnað. EFtirfarandi leiðbeiningar útskýra hvernig Boxið reiknar út sendingarkostnað viðskiptavina þinna og hvernig þú getur aðlagað reiknireglur að þínum þörfum.
Til að fullnýta alla möguleika í uppsetningu á sendingarmátum- og kostnaði þá er mikilvægt að hafa kynnt sér vel eftirfarandi hugtök:
- Sendingarflokkar
- Svæði
- Reiknireglur (to determine shipping rates)
- Sendingarmátar
Gott er að byrja á að kynna sér sendingarflokka og hvernig þú getur nýtt þá til að gera greinarmun á vörum í netversluninni þinni.